
Magnús Þorgrímsson, félagi okkar, vinur og stjórnarmaður í stjórn Hjartaheilla andaðist síðdegis mánudaginn 25. febrúar 2019. Útför Magnúsar fer fram föstudaginn 8. mars kl. 15:00 frá Langholtskirkju.
Stjórn og starfsmenn Hjartaheilla senda fjölskyldu Magnúsar innilegustu samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning um góðan vin og félaga.