„Með því að hlaupa til styrktar Hjartaheillum vil ég vekja athygli á því að það er ýmislegt hægt þó að menn fái hjartaáfall. Það er hægt að lifa lífinu áfram eins og hver annar,“ segir Sigmundur Stefánsson, 65 ára maraþonhlaupari og járnkarl. Sigmundur hleypur í Reykjavíkurmaraþoninu um næstu helgi til styrktar Hjartaheillum, en sjálfur fékk hann hjartaáfall fyrir tæpum tuttugu árum.
„Ég lenti í því fyrir hartnær tuttugu árum að fá hjartaáfall. Frá þeim tímamótum hef ég verið að hlaupa. Mér var nú fyrst ráðlagt að það væri ekki hollt fyrir mig. Síðan þjálfaði ég mig í rólegheitum upp í það að hlaupa maraþon,“ segir Sigmundur. MBL 14.08.2018
