Um Hjartaheill
Skv. lögum nr. 30/2002 um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu
Hjartaheill
Borgartúni 28a, 105 Reykjavík
Kennitala 511083 0369
Banki 0513 – 26 – 8739
Netfang hjartaheill@hjartaheill.is
Heimasíða www.hjartaheill.is
OPNUNARTÍMI SKRIFSTOFU 10:00 TIL 14:00 ALLA VIRKA DAGA
Símaráðgjöf í síma 552 5744 alla virka daga frá kl. 10:30 til 11:30.
Landssamtök hjartasjúklinga voru stofnuð 8. október 1983. Stofnfélagar voru 230, flestir hjartasjúklingar, vandamenn þeirra og velunnarar, en einnig voru þar læknar og hjúkrunarfólk.
Árið 2012 var nafni samtakanna breytt í Hjartaheill. Árgjald Hjartaheilla er 3.900 kr. á ári.
Hjartavinir – fjölgun félagsmanna
Öflun ehf. sem sér um söfnun styrkja í blaðið okkar Velferð tók að sér þetta verkefni sem felst í því að hringja í landsmenn og bjóða þeim að gerast Hjartavinir og greiða árlega 3.900,- kr. til Hjartaheilla.
Stjórn- og starfsmenn Hjartaheilla þakkar öllum þeim sem gerast Hjartavinir hjartanlega fyrir stuðninginn en samtökin glíma við einn skæðasta sjúkdóm 21. aldarinnar og daglega látast 2 til 3 einstaklingar af völdum hjartasjúkdóma. Þetta verkefni er tímalaust og mun halda áfram næstu árin.
Lögfræðingur Hjartaheilla
Sveinn Guðmundsson – viðtalstíma hjá lögfræðingi Hjartaheilla þarf að panta á skrifstofu samtakanna í síma 552 5744 eða með tölvupósti: hjartaheill@hjartaheill.is
Félags- og lögfræðiráðgjöf
Viðtalstíma hjá ráðgjöfum þarf að panta á skrifstofu ÖBÍ í síma 530 6700 eða með tölvupósti: mottaka@obi.is
Stuðningsnet Hjartaheilla
Stuðningsnet Hjartaheilla býður upp á jafningjastuðning fyrir fólk sem glímir við erfiða sjúkdóma og aðstandendur þeirra. Þeir sem veita stuðninginn eru einstaklingar sem greinst hafa með svipaða sjúkdóma eða eru aðstandendur. Allir stuðningsfulltrúar hafa lokið stuðningsfulltrúanámskeiði hjá umsjónaraðila og/eða fagaðilum.
Hlutverk Hjartaheilla er:
• að sameina hjartasjúklinga, aðstandendur þeirra og áhugafólk um heilbrigt hjarta
• að stuðla að betri heilsu og bættum lífsgæðum í íslensku samfélagi, með áherslu á framfarir í forvörnum, fræðslu og meðferð hjartasjúkdóma
• að standa vörð um hagsmuni og réttindi hjartasjúklinga
• að starfa faglega
• að framfylgja markmiðum samtakanna
Framtíðarsýn Hjartaheilla:
• Hjartaheill verði öflug hagsmunasamtök á sviði heilbrigðismála á Íslandi með stóran og virkan hóp félagsmanna.
• Hjartaheill verði leiðandi við að bæta lífsgæði landsmanna með eflingu forvarna og fræðslu um hjartasjúkdóma.