Hjartasjúkdómar eru algengir á Vesturlöndum og eðli málsins samkvæmt hefur þjónusta við hjartasjúklinga verið mjög umfangsmikil á Landspítala (LSH), stærsta sjúkrahúsi landsins.
Í dag, 1. desember, verða hins vegar talsverðar breytingar á þeirri starfsemi á LSH. Bráðaþjónusta hjartasjúklinga mun færast á Bráðamóttökuna í Fossvogi og mun hjartadeildin styðja vel við þessar breytingar og jafnframt nota tækifærið til efla ýmsa þætti þjónustunnar við þennan stóra sjúklingahóp.
Þetta kemur fram í grein Karls Andersen en hann er yfirlæknir Hjartagáttar og Davíðs O. Arnar sem er yfirlæknir hjartalækninga á Landspítala, í Morgunblaðinu í dag. Lesa meira Morgunblaðið 1. desember 2019
