Þegar arfgerð breytir meðferð

Arfgerð og meðferð

Þekking úr erfðafræðirannsóknum nýtist nú þegar til að þróa ný og virkari lyf. Sem dæmi má nefna að á grundvelli uppgötvana Íslenskrar erfðagreiningar er nú unnið að þróun nýrra lyfja við Alzheimerssjúkdómnum.

Íslensk erfðagreining býður almenningi á fræðslufund um erfðavísindi og lyf laugardaginn 16. mars, klukkan 13:00. Fundurinn fer fram í hús Íslenskrar erfðagreiningar, Sturlugötu 8. Allir velkomnir. Kaffiveitingar frá 12:30. Sjá staðsetningu.

Rannsóknir í erfðafræði hafa aukið skilning á mismunandi afbrigðum sykursýki, hjartasjúkdóma og fleiri algengra sjúkdóma. Og erfðafræðin hefur ekki bara aukið möguleika okkar við að þróa ný lyf heldur felast í henni margvísleg sóknarfæri fyrir betri heilbrigðisþjónustu. Þannig vitum við að læknismeðferð sem skilar bata hjá einum sjúklingi, gerir það ekki endilega hjá öðrum enda er erfðaefni okkar ólíkt líkt og lífshættir og umhverfi. Erfðaupplýsingar gera læknum kleift að veita sjúklingum meðferð sem er sérsniðin að hverjum og einum, til dæmis markvissari lyfjagjöf. Erfðarannsóknir hafa þannig stuðlað að nákvæmari lyfjagjöf í meðferð krabbameina, til dæmis sumum gerðum brjóstakrabbameins og hvítblæðis.

Hvar: Hús Íslenskrar erfðagreiningar, Sturlugötu 8.
Hvenær: Laugardaginn 16. mars, klukkan 13:00 til 14:30.
Allir velkomnir.
Kaffiveitingar frá 12:30