HJARTASTOPP ER LÍFSHÆTTULEGT!

HJARTASTOPP ER LÍFSHÆTTULEGT!

HJARTASTOPP ER LÍFSHÆTTULEGT!
Það er staðreynd að árlega fá um 200 manns hjartastopp hér á landi. Langflestir utan spítala eða heilbrigðisþjónustu. Þá er mikil hætta á ferðum, því það tekur einungis 3–5 mínútur að verða fyrir alvarlegum heilaskaða af völdum hjartastopps, ef ekkert er að gert. Rétt viðbrögð og ráðstafanir á réttum tíma skipta því sköpum. Helstu ráð til endurlífgunar er beiting hjartahnoðs og hjartastuðtækis sem allra fyrst. Við þessar staðreyndir eru HJARTAHEILL að glíma þessa dagana í fjáröflunarátaki sem nú fer fram á vegum samtakanna.

Þú getur hjálpað!
Almenningur og fyrirtæki í landinu geta gripið hér inn í og lagt málefninu lið. HJARTAHEILL standa fyrir fjársöfnun til þessa að efla vitund landsmanna um endurlífgun. Samtökin hafa útbúið sérprentaðan fræðslubækling og senda hann þessa dagana inn á heimilin í landinu. Þar er fjallað um vandann og viðbrögð við honum. Jafnframt er fjársöfnunin útskýrð og leiðir til framlaga.

FJÁRSÖFNUN – Leiðin til að leggja lið:
Hringdu í 903 7100 fyrir 3.500 kr. framlag til söfnunarinnar.
Frjáls framlög – Bankareikningur 0513_26_1600, kt. 511083-0369

Hvað er HJARTAHEILL?
Félagið HJARTAHEILL eru landssamtök áhugafólks um heilbrigði hjartans og lífsgæði í íslensku samfélagi. Félagið leggur áherslu á framfarir í forvörnum, fræðslu og meðferð hjartasjúkdóma, auk þess að standa vörð um hagsmuni og réttindi hjartasjúklinga. Í samtökunum eru fagfólk, hjartasjúklingar, aðstandendur og annað áhugafólk um málefnið.