

Jón Þór Jóhannsson, félagi okkar, vinur og fyrrverandi formaður Félags hjartasjúklinga á Reykjavíkursvæðinu lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni mánudaginn 2. nóvember s.l.
Stjórn og starfsfólk Hjartaheilla sendir fjölskyldu Jóns Þórs innilegustu samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning um góðan vin og félaga.