Daglegar göngur úti, hvað breytist?

Daglegar göngur úti, hvað breytist?

Það gæti komið mörgum á óvart hvaða breytingar líkaminn gengur í gegnum ef þú ferð út og gengur á hverjum degi. Göngur eru ódýrasta hreyfing sem er í boði og útiveran gerir öllum gott.

Daglegar göngur úti, hvað breytist?
Daglegar göngur úti, hvað breytist?

Hér eru tíu atriði sem breytast:
Stóra spurningin er samt þessi, áttu auka korter eða hálftíma á dag til að fara út að ganga?
Já, ég er viss um það. Það þarf að setja sjálfa/n sig í fyrsta sæti og hreyfa sig daglega. Að fara út að ganga er ofsalega gott fyrir líkamann og mælt er með allavega hálftíma góðri göngu – kraftganga er best. Þetta er ódýrasta hreyfing sem í boði er og þú andar að þér fersku lofti og getur notið þess að vera ein/n.

Gott fyrir heilann
Gerðar hafa verið rannsóknir á því hvað ganga gerir fyrir heilann. Samkvæmt þessum rannsóknum þá eykur ganga endorfínið í líkamanum og dregur þannig úr stressi. Að fara út að ganga gerir heilanum það gott að það getur dregið úr áhættunni á Alzheimer til muna.

Sjónin
Það hljómar kannski einkennilega, en að fara og ganga daglega er mjög gott fyrir sjónina. Að ganga eykur þrýsting á augu og getur þannig dregið úr gláku.

Hjartað
Að ganga eða hlaupa er gott fyrir hjartað. Þú getur dregið úr áhættu á hjartaáfalli og öðrum sjúkdómum tengdum hjartanu. Að ganga dregur einnig úr kólestrólinu og eykur blóðstreymi í líkamanum.

Lungun
Að ganga er afar gott fyrir lungun. Þau fyllast af súrefni sem nýtist líkamanum afar vel og eykur á virkni lungnanna.

Brisið
Komið hefur fram í rannsóknum að fólk sem gengur sér til heilsubótar er með betra jafnvægi á glúkósa í líkamanum. Þetta þýðir að þú
getur hreinlega gengið og komið þannig í veg fyrir sykursýki.

Meltingin
Það þarf að passa upp á magaheilsuna. Gerir þú það þá ertu að sporna við ristilkrabba og öðrum vandamálum eins og hægðatregðu.

Vöðvarnir
Þegar manneskja grennist þá rýrna vöðvarnir. Hér er verið að tala um hin frægu tíu þúsund skref á dag. Ef þú ert að grenna þig, þá skaltu vinna þig upp í þennan skrefafjölda á dag. Gott er að ganga upp í móti til að auka á vöðvamassa.

Liðamót og bein
Ertu stirð/ur og með verki? Hálftíma ganga á dag getur dregið úr þessum verkjum í liðamótum. Einnig dregur gangan úr hættu á meiðslum og beinþynningu. The Arthritis Foundation mælir með því að ganga daglega.

Bakverkir
Æfingar sem reyna mikið á líkamann geta slitið bakið illa. En hins vegar að fara út að ganga getur dregið úr bakverkjum vegna þess að blóðflæði í kringum mænu og hrygg eykst töluvert.

Hugurinn
Að ganga ein/n frekar en með öðrum eykur góða skapið, minnkar stress og kvíða. Það hefur einnig verið talað um að það dragi úr þunglyndi.

Leggjum söfnun Hjartaheilla lið í baráttunni við skæðasta sjúkdóm 21. aldarinnar – hjartasjúkdóma – sjá www.hjartaheill.is

HJARTAHEILL stendur nú að söfnun til fármögnunar á fræðslu- og forvarnarverkefnum í málefnum endurlífgunar.
HJARTAHEILL leitar til almennings og fyrirtækja í landinu um stuðning við þessi verkefni sín.

HJARTAHEILL stendur nú að söfnun til fármögnunar á fræðslu- og forvarnarverkefnum í málefnum endurlífgunar.
HJARTAHEILL stendur nú að söfnun til fjármögnunar á fræðslu- og forvarnarverkefnum í málefnum endurlífgunar.

Með greiðslu í heimabanka, kr. 3.500 eða meira eða minna.
Með millifærslu á reikning: 0513 26 1600, Kennitalan er: 511083 0369.
Með hringingu í síma 903 7100 styrkir þú verkefnið um 3.500 kr.
Með því að greiða valgreiðslur í heimabanka.