Þann 14. ágúst 2024 lést Kristján Smith. Hann var einn af máttarstólpum
Hjartaheilla, landssamtaka hjartasjúklinga. Jarðaförin fór fram í kyrrþey að hans ósk.
Kristján lagði gjörva hönd á plóginn og sá mikilvægi þess að Hjartaheill yrðu öflug
hagsmunasamtök á sviði heilbrigðismála á Íslandi með stóran og virkan hóp
félagsmanna og að samtökin yrðui leiðandi við að bæta lífsgæði landsmanna með
eflingu forvarna og fræðslu um hjartasjúkdóma.
Kristján var mikill félagsmaður og gerði sér grein fyrir þessum áhrifum sem
félagasamtök líkt og Hjartaheill standa fyrir. Hann var alltaf fyrstur að borði þegar
Hjartaheill stóð fyrir atburðum og var öðrum til hvatningar og fyrirmyndar.
Þakklæti felst í því að kunna að bera kennsl á það sem virðist sjálfsagt og læra að meta
það mikils. T.d. einstaklinga eins og Kristján sem hafa með miklu starfi rutt brautina fyrir
Hjartaheill með störfum sínum. Þann 12. desember, 2015 var Kristjáni veitt gullmerki
Hjartaheilla sem er æðsta heiðursmerki sem samtökin geta veitt.
Hjartaheill þakkar góðum félaga fyrir mikilvægt sjálfboðastarf til áratuga.
Stjórn Hjartaheilla, landssamtaka hjartasjúklinga sendir fjölskyldu Kristjáns innilegar
samúðarkveðjur.
