Falleg og látlaus athöfn fór fram fyrir nokkru á skrifstofu Hjartaheilla. Þar voru mættir Kristján Sigmundsson, formaður stjórnar ásamt Sigmundi Kristjánssyni fyrir hönd Líknarsjóðs Ögnu og Halldórs Jónsson. Erindði var að færa Hjartaheill veglega peningaupphæð, framlag úr Líknarsjóðnum og veitti Sveinn Guðmundsson, formaður Hjartaheilla þessum veglega styrk móttöku.
Líknarsjóður Ögnu og Halldórs Jónssonar var stofnaður nokkru eftir fráfall Halldórs Jónssonar, stofnanda og forstjóra innflutningsfyrirtækis Halldór Jónsson hf. sem stofnað var árið 1955 og hefur verið í farsælum rekstri síðan.
Félagið Hjartaheill fagnar þessum atburði. Styrkurinn kemur sér vel í starfi félagsins og verður beint að fræðslustarfi þess og útgáfustarfi.
