Í líkama fullorðins einstaklings eru um 5 lítrar af blóði. Í ungabörnum er rúmlega lítri af blóði. Ef slagæð verður fyrir skaða getur það valdið miklu blóðtapi vegna innri og ytri blæðinga í líkamanum. Svo mikill þrýstingur er í slagæðum að blóðið hreinlega spýtist út.
Ef fullorðinn maður tapar meira en lítra er það talið mikið, enda er það meira en tvöfalt á við venjulega blóðgjöf í blóðbanka. Börn teljast hafa misst mikið blóð ef þau missa meira en 3 desilítra. Sá sem missir mikið blóð finnur oft til óróa, þorsta og ógleði og húðin verður köld, föl og þvöl.
Púlsinn verður veikur því blóðþrýstingurinn fellur og líffærin eiga í erfiðleikum með að starfa á eðlilegan hátt. Blóðið sem eftir er í líkamanum fullnægir ekki alltaf súrefnisþörf líkamans og án blóðgjafar og meðhöndlunar getur því mikið blóðtap valdið losti, meðvitundarleysi og dauða.
Upplýsingar Vísindarvefurinn