Alþjóðlegur hjartadagur 26. september 2004
Leggjum grunn að HEILBRIGÐU HJARTA ÆVILANGT….
Sunnudaginn 26. september n.k. verður alþjóðlegur hjartadagur haldinn í yfir 100 löndum. Þemað eru börn, unglingar og hjartasjúkdómar. Hjartavernd og HjartaHeill (Landssamtök hjartasjúklinga) standa fyrir skipulagðri dagskrá.
Actavis er aðalstyrktaraðili dagsins.
HJARTAGANGA-LÍNUSKAUTAHLAUP
Frá félagsheimili Þróttara kl.13:00
Hin árlega hjartaganga verður farinn frá félagsheimili Þróttara í Laugardalnum, sunnudaginn 26.september n.k. kl.13.00. Mæting í upphitun kl.12:30.
Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra ávarpar göngu- og línuskautafólk.
Logi Ólafsson, landsliðsþjálfara hvetur fólk af stað eins og honum einum er lagið.
Félagar frá linuskautar.is verða með létta línuskautaferð (ef veður leyfir) frá sama stað og sama tíma. Fulltrúar Latabæjar, þær Solla stirða og Halla hrekkjusvín taka þátt í göngunni. Farin verður um hálftíma ganga/línuskautahlaup.
Allir göngumenn fá Egils kristal, á meðan birgðir endast.
Skautahöllin býður upp á ókeypis leigu á skautum þennan dag. Því ættu allir að geta rennt sér á skautum hvernig sem viðrar.
HEILSUFARSMÆLINGAR OG FRÆÐSLA
Í félagsheimili Þróttara kl.13: til 16:00
HjartaHeill og Hjartavernd standa ennfremur fyrir heilsufarsmælingum þennan dag. Boðið verður upp á kólesteról- og blóðþrýstingsmælingar, ráðgjöf og fræðslu. AstraZeneca býður upp á kólesterólmælingarnar. Vakinn verður athygli á RÁÐGJÖF Í REYKBINDINDI (grænt númer 800 6030). Áhættureiknivél á hjarta.is verður kynnt. Fólk yfir fertugt sem ekki hefur látið mæla þessa þætti er sérstaklega hvatt til að nota tækifærið og fá mælingu.

www.worldheartday.com www.hjarta.is www.lhs.is www.actavis.is
Heimssamtök hjartaverndarfélaga boða til dagsins í yfir 100 löndum.

