EFTIRFARANDI er ályktun framkvæmdastjórnar Öryrkjabandalags Íslands vegna skýrslu um réttlátari notendagjöld í sjúkratryggingum á Íslandi:
„Framkvæmdastjórn Öryrkjabandalags Íslands lýsir stuðningi við þau megin sjónarmið sem fram koma í skýrslu sérfræðinga Tryggingastofnunar ríkisins um réttlátari notendagjöld í sjúkratryggingum á Íslandi. Miklu varðar fyrir notendur heilbrigðiskerfisins að kerfið sé einfaldað frá því sem nú er, álögur lækkaðar á þá sem þurfa á þjónustunni að halda og að jafnræðis sé gætt á milli hópa sjúklinga.
ÖBÍ hvetur ráðherra heilbrigðis- og tryggingamála að skoða skýrsluna með jákvæðum og opnum huga og hefja þegar í stað, á grundvelli hennar, endurskoðun laga og reglna í nánu samráði við heildarhagsmunasamtök. ÖBÍ lýsir sig reiðubúið til þess verkefnis.“ Morgunblaðið 3. mars 2006
