10. apríl s.l. mættu starfsmenn Hjartaheilla, ásamt hjúkrunarfræðingum frá hjartadeild LSH, í húsakynni Ríkisendurskoðunar og mældu þar blóðþrýsting, blóðfitu og fleira meðal starfsmanna.
Var gerður að þessu góður rómur eins og hvarvetna þar sem Hjartaheill hefur staðið fyrir mælingum.
Mælingar á vegum Hjartaheilla hafa staðið yfir í mörg undanfarin ár víðs vegar um land og gefið margar vísbendingar sem brugðist hefur verið við.
Stungið á Sigurði Þórðarsyni ríkisendurskoðanda
Alls hafa um sex þúsund manns notið þessarar þjónustu Hjartaheilla á undanförnum árum með aðstoð LSR og heilsugæslufólks víðs vegar um landið.
Hér má sjá Bylgju, Önnu og Eddu undirbúa mælinguna.
