
Í dag undirrituðu Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri samskiptasviðs Eimskipa, Guðrún Bergmann Franzdóttir, formaður Neistans, og Ragna Marinósdóttir, framkvæmdarstjóri Umhyggju, samning við Eimskip.
Samningurinn felur í sér, að fyrir hvert mark sem Eiður Smári Guðjohnsen skorar í spænsku deildinni mun Neistinn fá 500.000 kr. styrk og fyrir hvert mark sem Eiður Smári skorar í meistaradeild Evrópu fær Umhyggja 1.000.000 kr. í styrk. Ef upp koma meiðsli eða annað sem gæti leitt til þess að ekkert mark verði skorað, fá félögin að lágmarki 500.000 kr. og 1.000.000 kr. hvort.
Fyrir hönd félagsmanna okkar og stjórnar vilja formaður Neistans og framkvæmdastjóri Umhyggju koma á framfæri miklu þakklæti til Eimskipa og Eiðs Smára fyrir frábært framtak.
Félög okkar stuðla bæði að bættum hag veikra barna og fjölskyldna þeirra, andlega, félagslega og fjárhagslega. Samningur þessi á eftir að koma sér vel til að styrkja félögin í starfi sínu.
Nú er bara að hvetja Eið Smára til dáða og vona að hann skori sem flest mörk.
Áfram Eiður Smári!