
Of hátt kólesteról, of hár blóðþrýstingur og reykingar eru helstu áhættuþættir hjartasjúkdóma.
Til að draga úr hættu á hjartasjúkdómum er mjög áríðandi að gefa gaum að áhættuþáttunum. Svo segir á vefmiðli The New York Times, þar sem hjartasérfræðingurinn dr. Elizabeth Nabel tjáir sig um þessi mál, en hún hefur bæði starfað við og rannsakað fjölmargt sem viðkemur hjartasjúkdómum. Hún hefur mikla trú á forvörnum, og stundar þar af leiðandi líkamsrækt af miklum krafti nánast daglega og fylgist grannt með eigin blóðþrýstingi, kólesteróli í blóðinu og líkamsþyngdarstuðlinum.
Hún segir að allir ættu að vita um fimm atriði sem skipta máli þegar kemur að hjartasjúkdómum:
* Bráðdrepandi
Hjartasjúkdómar eru aðalmorðingjarnir á meðal vor, því þeir drepa eina af hverjum fjórum konum og einn af hverjum fjórum körlum.
* Forvarnir
Hægt er að draga verulega úr hættunni á að fá hjartasjúkdóma, með því að hafa stjórn á blóðþrýstingnum, kólesterólinu og með því að reykja ekki. Um 85 prósent þeirra sem látast vegna hjartaáfalls hafa að minnsta kosti einn af þessum áhættuþáttum: Of háan blóðþrýsting, of hátt kólesteról eða voru reykingafólk.
Karlar sem eru eldri en 45 ára og konur sem eru komnar yfir 65 ára aldur, ættu að taka asperín daglega til að draga úr hættu á að fá hjartaáfall eða heilablóðfall. Þeir sem eru í áhættuhópi ættu að taka allt að 325 mg af asperíni daglega. Allir aðrir sem eru ekki í áhættuhópi, en eldri en 65 ára, ættu að íhuga að taka 81 mg af asperíni daglega eða 100 mg annan hvern dag. Rétt er að ráðfæra sig við lækni áður en byrjað er á að taka asperín reglulega.
* Einkenni
Einkenni um hjartaáfall eru ekki alltaf þau sem fólk heldur. Algengustu einkennin eru brjóstverkur eða vanlíðan. En viðvörunarbjöllurnar geta einnig verið verkir eða vanlíðan annarsstaðar í efri hluta líkamans, til dæmis í höndum, baki, hálsi eða maga. Hjá konum geta merki um hjartáfall komið fram í því að þær verða andstuttar, úrvinda af þreytu, finna fyrir ógleði eða kasta upp, eða þær fá verki í bak eða kjálka. Þeir sem finna fyrir einhverjum ofangreindum einkennum eiga strax að hringja á sjúkrabíl. Skjót viðbrögð og tafarlaus meðhöndlun skiptir öllu máli þegar losa þarf um stíflaðar kransæðar og þannig komið í veg fyrir drep í hjartavöðvanum af völdum blóðskorts.
* Áætlun
Þeir sem eru í áhættuhópi ættu að gera áætlun í samráði við lækninn sinn um hvernig skuli bregðast við hjartaáfalli. Í því felst að þekkja viðvörunarmerkin um hjartaáfall og taka nítróglýserín, sem er æðavíkkandi lyf. Ef einkennin hverfa ekki eftir fimm mínútur, skal taka aðra og þriðju töflu af nítróglýseríni. Hafa skal tilbúinn lista yfir þau lyf sem viðkomandi tekur reglulega, til að auðvelda þeim sem sinna viðkomandi hjartasjúklingi störf sín, hvort sem það er starfsfólk sjúkrabíls eða bráðamóttöku.
Ef einkennin hverfa á innan við fimm mínútum, á viðkomandi samt sem áður að hringja í heimilislækninn sinn og láta vita og fá ráð.
* Neyðartilvik
Allir þeir sem finna fyrir einkennum hjartaáfalls eiga að hringja í neyðarlínuna 112. Og þeir eiga alls ekki að keyra sjálfir upp á bráðamóttöku. Ekki ætti að hunsa einkennin af þeirri ástæðu einni að viðkomandi telji sig ekki vera í áhættuhópi þeirra sem fá hjartaáfall. Hver mínúta í seinkun á meðferð, getur orsakað hjartadrep. Tíminn skiptir öllu máli.
Í hnotskurn
» Hjartasjúkdómar eru aðalmorðingjarnir á meðal vor, því þeir drepa eina af hverjum fjórum konum og einn af hverjum fjórum körlum.
» Um 85 prósent þeirra sem látast vegna hjartaáfalls hafa að minnsta kosti einn af þessum áhættuþáttum: Of háan blóðþrýsting, of hátt kólesteról eða voru reykingafólk.
» Tíminn skiptir öllu máli þegar fólk fær hjartaáfall. Að koma viðkomandi strax undir læknishendur skiptir sköpum. Hver mínúta í seinkun á meðferð, getur orsakað hjartadrep.
Morgunblaðið miðvikudaginn 11. apríl 2007.