SÍBS fólk er að leggja af stað í 10 daga ferð um landið. Ferðin hefst á Sauðárkróki 12. september og endar á Kirkjubæjarklaustri þann 21.
Mælingar verða á heilsugæslustöðvum í samstarfi viðheimamenn. Mældur verður blóðþrýstingur, blóðfita ásamt súrefnismettun og öndunarmælingu. Einkum er reynt að ná til þeirra sem ekki hafa fengið slíka mælingu áður.
