Heilbrigt hjarta með samvinnu.

Guðrún Bergmann Franzdóttir , formaður Neistans styrktarfélags hjartveikrabarna og fulltrúi Hjartaheilla.

Sunnudaginn 30. september er Alþjóðlegi hjartadagurinn sem haldinn er árlega, þemað í ár er "Heilbrigt hjarta með samvinnu,, þessi dagur er notaður til að vekja athygli á hjartasjúkdómum og heilbrigðum lífsstíl.

Guðrún Bergmann Franzdóttir , formaður Neistans styrktarfélags hjartveikrabarna og fulltrúi Hjartaheilla.Hvort sem við erum heilbrigð, hjartveik eða með einhvern annan sjúkdóm þurfum við öll að hreyfa okkur og huga að réttu mataræði.

Hér á landi greinast árlega um 70 börn með hjartagalla og þarf tæplega helmingur þeirra að gangast undir aðgerð af einhverju tagi og er þriðjungur aðgerða framkvæmdar erlendis. Fyrsta barna-hjartaskurðaðgerðin var framkvæmd hér á landi árið 1990.

Frá því að Neistinn félagið okkar var stofnað 9. maí 1995 hefur margt drifið á daginn en stjórn félagsins er skipuð 7 manns og vinnum við öll í sjálfboðavinnu, og öll saman af einlægni  hjálpumst að við að safna fjármunum til að aðstoða fjölskyldur hjartveikra barna ásamt því að auðvelda fjölskyldum aðgengi að upplýsingum.

Hvort sem við fæðumst með hjartagalla eða fáum hjartasjúkdóm einhverntímann á lífsleiðinni þá þurfum við öll að huga að hreyfingu og heilbriðgum lífsstíl því þó svo að börnin okkar fara í aðgerð fljótlega í lífinu og eru í lagi eftir þá aðgerð, þá þurfum við að sjá til þess að þau stundi einhversskonar hreyfingu en misjafnt er þó hvaða hreyfing henti hverjum því margir sem fæddir eru með hjartagalla eru ekki með nógu gott þol eða heilsu en öll getum við fundið eitthvað við okkar hæfi hvort sem það er hlaup, ganga eða eitthvað annað.

Stöndum saman og tökum þátt í þessum degi með því að hittast, hreyfa okkur, og stuðla að betri líðan því öll þurfum við að hugsa um heilsuna og hjartað okkar því við verðum að muna að við höfum aðeins eitt hjarta.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *