GÓÐTEMPLARAREGLAN á Akureyri afhenti Sjúkrahúsinu á Akureyri (FSA) í gær 50 milljónir króna að gjöf til stofnunar á sérstökum sjóði sem varið verður til kaupa á tækjum og búnaði til greiningar og meðferðar hjartasjúkdóma á stofnuninni. Að sögn forsvarsmanna FSA er hér um að ræða einhverja alstærstu gjöf sem FSA hefur fengið frá upphafi.
Fulltrúar Góðtemplarareglunnar á Akureyri afhentu gjöfina; Árni Valur Viggósson, formaður, Gunnar Lórenzson gjaldkeri og Guðmundur Magnússon ritari. Það var Halldór Jónsson, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri, sem veitti gjöfinni viðtöku fyrir hönd sjúkrahússins.
Forvarna- og mannúðarstarf
„Þessi gjöf hefur gríðarlega mikla þýðingu fyrir Sjúkrahúsið á Akureyri og þá starfsemi sem hér fer fram, því hún stóreykur möguleika okkar á að greina, rannsaka og fást við hjartasjúkdóma. Við erum Góðtemplarareglunni á Akureyri mjög þakklát fyrir þessa höfðinglegu gjöf. Hún kemur í góðar þarfir," segir Halldór Jónsson í gær.
Jón Þór Sverrisson, forstöðulæknir lyflækningadeilda, var himinlifandi með gjöfina og sagði fjárupphæðina duga stofnuninni í nokkur ár til tækjakaupa vegna hjartasjúkdóma. Jón Þór sagði fé til tækjakaupa oft af skornum skammti og því væri það stofnun eins og FSA geysilega mikilvægt að eiga slíkan sjóð.
Halldór Jónsson sagði gjöf Góðtemplarareglunnar á Akureyri einstaka og kvaðst í gær vonast til þess að þetta glæsileg framtak reglunnar yrði öðrum hvatning „Til að segja fullum fetum að þetta sé stærsta gjöfin frá upphafi þyrfti að framreikna verðmæti stórra gjafa frá fyrri árum og áratugum. Þó það hafi ekki verið gert, get ég hiklaust fullyrt að þetta er einhver alstærsta einstaka gjöf sem sjúkrahúsinu hefur borist frá upphafi," segir Halldór.
Stúkustarf á Akureyri var með miklum blóma á annað hundrað ár og var það undirstaða forvarna- og mannúðarstarfs sem og menningar- og listastarfsemi í bæjarfélaginu um langt árabil.
Til að standa straum af umfangsmiklu starfi sínu stofnuðu stúkurnar til ýmiss konar fyrirtækjareksturs og byggðu stórhýsi undir starfsemina. Þau setja enn þann dag í dag sterkan svip á bæjarmyndina og má þar nefna Samkomuhúsið, Skjaldborg og Borgarbíó. Þá áttu og ráku stúkurnar einnig Hótel Varðborg um langt skeið.
„En allt hefur sinn tíma og nýjar leiðir og áherslur ráða nú ferðinni á því sviði sem Góðtemplarareglan starfaði. Fyrirtæki hennar og hús hafa nú verið seld og hluti andvirðis þeirra verið notaður til að gera upp Friðbjarnarhús í Aðalstræti 46. Þar hafa stúkurnar komið upp safni yfir hið merkilega starf sitt og er nú verið að leggja lokahönd á enduruppbyggingu þess. Þeir fjármunir, sem eftir eru af tæplega 125 ára starfi Góðtemplarareglunnar á Akureyri, hafa nú verið afhentir Sjúkrahúsinu á Akureyri," segir í frétt frá Góðtemplarareglunni.
„Starfið mun lifa áfram"
„Gjöf okkar til Sjúkrahússins á Akureyri fylgir sú einlæga ósk og von að hún komi að sem bestum notum fyrir fólkið sem þangað leitar, en margt af því hefur efalaust tekið þátt í stúkustarfi á sínum yngri árum," sagði Árni Valur Viggósson, stjórnarformaður Góðtemplarareglunnar á Akureyri í gær.
Árni Valur segir að með gjöfinni megi heita að hinu heilladrjúga starfi, sem stúkurnar lögðu fram til farsællar lífsgöngu Akureyringa, sé lokið. „Saga hins merka félags-, menningar- og mannúðarstarfs, sem góðtemplarar á Akureyri inntu af hendi, mun hins vegar lifa áfram í þessari gjöf sem og í safninu Friðbjarnarhúsi," segir Árni Valur.
Í hnotskurn
» Góðtemplarareglan á Íslandi var stofnuð hinn 10. janúar 1884, á heimili Friðbjarnar Steinssonar bóksala, Aðalstræti 46 á Akureyri. Þar verður nú safn um starfsemina á Akureyri. Morgunblaðið þriðjudaginn 5. febrúar 2008