Lyfin dýrust í Danmörku og á Íslandi

Lyfjaverðsnefnd gerði könnunina.

Smásöluverð á lyfjum reyndist vera hæst í Danmörku í 15 tilvikum en í 14 tilvikum á Íslandi í febrúar. Um er að ræða þær 33 veltuhæstu pakkningar sem Tryggingastofnun niðurgreiddi fyrir landsmenn árið 2006.

 

Lyfjaverðsnefnd gerði könnunina. Lyfjaverð reyndist aldrei hæst í Noregi en lægst þar í 20 tilvikum. Á Íslandi reyndist verð á tveimur lyfjum lægst á Íslandi. Í Svíþjóð voru fjórar tegundir dýrastar en níu ódýrastar. Þetta kemur fram í nýrri verðkönnun sem lyfjagreiðslunefnd hefur gert.

 

Samanburðarlöndin eru Danmörk, Noregur og Svíþjóð. Í verðkönnuninni kemur fram að heildsöluverð á þessum lyfjum er í 9 tilvikum lægst á Íslandi og hæst í 4 tilvikum. Í Danmörku er heildsöluverðið í tveimur tilvikum lægst í Danmörku en hæst í 19 tilvikum. Í Noregi er heildsöluverð lægst í 15 tilvikum en aldrei hæst.

Morgunblaðið þriðjudaginn 12. febrúar 2008

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *