
ÞAÐ hefur ekki farið framhjá landsmönnum að læknir er ekki lengur á sjúkrabíl 701, neyðarbíl slökkviliðsins. Hið nýja fyrirkomulag hefur sætt harðri gagnrýni og sögðu margir unglæknar á LSH upp störfum sínum í kjölfar þessarar ákvörðunar sem tekin var í hagræðingar- og sparnaðarskyni meðal annars. En nú hefur málið fengið nýtt sjónarhorn sem vonandi sættir hin ólíku sjónarmið.
„Stefnumótabifreið" af Volvogerð
„Við hjá slysa- og bráðasviði LSH höfum fengið heimild hjá heilbrigðisráðuneyti til kaupa á svokallaðri „stefnumótabifreið", sem verður Volvo-skutbíll," segir Már Kristjánsson, sviðsstjóri lækninga á Landspítala.
En hverju breytir þetta?
„Við höfum þá tækifæri til að senda lækni frá bráðadeildinni beint á vettvang í völdum tilfellum. Tilvikum eins og þegar um endurlífgun er að ræða eða einhver er stórslasaður og fyrirsjáanlegt er að sá slasaði verður lengi á slysvettvangi vegna þess að hann er fastur í bílflaki eða undir öðru fargi."
Hvenær kemur bíllinn?
„Rauði krossinn, sem er rekstraraðili bifreiðarinnar, er búinn að fá hana og er að útbúa hana sérstaklega í þetta hlutverk, m.a. með tilliti til forgangsaksturs en auk þess eru einföld lækningatæki í bifreiðinni. Þessi bifreið er þó ekki hugsuð til sjúkraflutninga heldur sem farartæki læknis."
Á þetta sér fyrirmynd erlendis?
„Já, sérstaklega í Evrópu, þetta tíðkast bæði í Danmörku, Þýskalandi, Spáni og víðar."
Leysir þetta að þínu mati þetta erfiða mál? „Ég hygg að með tilkomu „stefnumótabifreiðarinnar" og breyttu skipulagi á vinnulagi innan slysadeildar muni allir aðilar geta við unað. Við erum alltaf að hugsa um öryggi sjúklinganna og við teljum að með þessu fyrirkomulagi sé það varðveitt." Morgunblaðið mánudaginn 10. mars 2008