
„ÉG geri það af og til að fara um sjúkrahúsið og núna er ég að heimsækja allar deildir til að þakka fólki fyrir gott samstarf og hvetja það til að halda áfram að reka þennan ágæta spítala,
" sagði Magnús Pétursson, forstjóri Landspítala, við Morgunblaðið í gær en hann hættir sem forstjóri eftir níu ára starf 1. apríl næstkomandi. Magnús kom við á Landspítalanum í Fossvogi í gær og kvaddi m.a. starfsfólk háls-, nef- og eyrnadeildar.