Við sjáum mikla breytingu á honum

Daníel Freyr Newton, 6 ára Hólmvíkingur, brosir breitt þessa dagana og það gera aðrir Hólmvíkingar líka. Daníel er nefnilega nýkominn heim eftir mikla hjartaaðgerð í Boston í Bandaríkjunum og er strax farinn að geta leikið sér úti.

 

Því fagna bæjarbúar sem hafa stutt vel við bakið á fjölskyldunni, að sögn móður Daníels, Jóhönnu Guðbrandsdóttur. Daníel fæddist með hjartagalla sem uppgötvaðist strax á fæðingardeild Landspítalans.

 

Í stað þess að fara með þann stutta heim fóru foreldrarnir með hann nokkurra daga gamlan á sjúkrahús í Boston og aftur þegar hann var þriggja mánaða til að láta víkka út ósæðarloku, að því er Jóhanna greinir frá. Í maílok var gerð viðameiri aðgerð á Daníel.

24 stundir fimmtudaginn 5. júní 2008

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *