Ráðherra kaupir hjartaþræðingar og liðskiptiaðgerðir

Ráðherra kaupir hjartaþræðingar og liðskiptiaðgerðir

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að ráðstafa auknum fjármunum til hjartaþræðinga og liðskiptaaðgerða á Landspítalanum og á Sjúkrahúsinu á Akranesi.

 

Ráðherra kaupir hjartaþræðingar og liðskiptiaðgerðirÞannig hefur ráðherra ákveðið að kaupa 80 hjartaþræðingar og 41 liðskiptaaðgerð af Landspítalanum og stytta með því bið eftir þessum læknisverkum eins og segir á vef heilbrigðisráðuneytins. Er stefnt að því að bið eftir hjartaþræðingum verði ekki lengri en þrír mánuðir.

 

Sjúkrahúsið á Akranesi mun auk þess gera 25 liðskiptaaðgerðir þannig að þeim fjölgar alls um 66. Heildarkostnaðurinn er tæpar 55 milljónir króna vegna þessara verka en heilbrigðisráðuneytið fór fram á það við stofnanirnar tvær í maí að þær byðu í þessi tilteknu læknisverk eftir nákvæma faglega athugun á biðtíma og þörf fyrir að stytta hann. Visir.is þriðjudaginn 10. júní 2008

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *