Hjartaáföllum fækkaði við lýsisgjöf

Hjartaáföllum fækkaði við lýsisgjöf

Umfangsmikil rannsókn sem gerð var á hjartadeildum 357 sjúkrahúsa á Ítalíu bendir til þess að eitt hylki af Omega-3 fiskilýsi á dag gagnist hjartasjúklingum. Rannsóknin náði til sjöþúsund hjartasjúklinga sem í fjögur ár fengu eitt lýsishylki á dag.

 

Hjartaáföllum fækkaði við lýsisgjöfHelmingurinn fékk raunar plathylki. Allir sjúklingarnir fengu þar að auki hefðbundna meðferð og lyf.

 

Niðurstaðan var sú að þeir sem fengu alvöru Omega-3 hylki dóu síður úr hjartaáfalli. Munurinn var níu prósent. Hættan á hjartaáfalli sem ekki leiddi þó til dauða minnkaði um átta prósent.

 

Niðurstaða rannsóknarinnar er birt í nýjasta hefti læknaritsins The Lancet.

 

Danska blaðið Jyllandsposten segir frá þessu og getur þess að aðrar rannsóknir hafi leitt í ljós að lýsi sé einnig gott fyrir heilann.

 

Þannig hafi lýsisgjöf merkjanlega góð áhrif á börn sem haldin eru ofvirkni og athyglisbresti og eins á alzheimer sjúklinga. Þá hafi námsárangur barna batnað við lýsisgjöf.

Vísir.is þriðjudaginn 2. september 2008

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *