Breyttar reglur

Nýtt smásöluálagningarkerfi lyfja 2009

Á fundi Lyfjagreiðslunefndar þann 26. ágúst 2008 voru ákveðnar nýjar reglur um smásöluálagningu lyfja sem taka gildi á árinu 2009.

Markmið breytingarinnar:

 

  • Leitast við að hafa smásöluálagningu á hverri pakkningu í samræmi við kostnað við afgreiðslu.
  • Einfalda álagningarkerfið með fækkun álagningarflokka.
  • Hafa álagningarkerfið svipað og á hinum Norðurlöndunum.
     

Með auknu vægi krónutöluálagningar þá hafa breytingar á heildsöluverði minni áhrif á smásöluálagningu og smásöluverð.

  • Það skilyrði var sett að heildarverð lyfja í smásölu hækki ekki við formbreytinguna.
  • Verð mun breytast mismunandi eftir verðflokkum.
  • Greiðsluþátttaka Tryggingarstofnunar mun sennilega lækka í óbreyttu greiðsluþátttökukerfi.
  • Krónutala álagningarinnar verður endurskoðuð árlega með tilliti til kostnaðarþróunar. 80% launavísitala – 20% byggingarvísitala.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *