Fleiri fá fyrir hjartað

Álag Hjúkrunarfræðingar á LSH.

VERULEG fjölgun varð á komum á bráðamóttöku Landspítalans við Hringbraut fyrri hluta þessa mánaðar. Þangað koma einkum þeir sem eru með einkenni frá hjarta eða maga og segist sviðsstjóri á deildinni ekki hafa aðrar skýringar á þessu en aukið álag og áhyggjur vegna kreppunnar.

 

Álag Hjúkrunarfræðingar á LSH. Már Kristjánsson, sviðsstjóri lækninga á slysa- og bráðasviði, segir að á tímabilinu 3.-9.október hafi komið 25% fleiri sjúklingar á bráðamóttökuna við Hringbraut heldur en sem nemur meðaltali 40 vikna þar á undan. Í vikunni 10.-16. október hafi enn fjölgað og fjöldinn verið 35% meiri en sem nemur fyrrnefndu 40 vikna meðaltali.

 

Skýringuna að finna í kreppunni

Á sama tíma fækkaði þeim sem komu á slysa- og bráðamóttökuna í Fossvogi, sem tekur bæði við slösuðum og þeim sem eru með önnur veikindi en út frá brjóst- og kviðarholi. Nemur fækkunin 5-7% miðað við sömu reikningsaðferðir.

 

„Við verðum að líta svo á að skýringuna á þessu sé að finna í kreppunni," segir Már Kristjánsson. „Bæði brjóstverkur og magaverkur geta verið spennutengd veikindi og fólk hefur leitað í auknum mæli á bráðamóttökuna við Hringbraut síðustu vikur vegna gruns um þessi veikindi. Fólk fær ekki lungnabólgu sérstaklega í kreppunni, en getur fengið fyrir hjartað eða í magann. Öll geðshræring, álag eða áföll geta haft líkamleg eða andleg áhrif," segir Már.

 

Aukið álag

Gestur Þorgeirsson, yfirlæknir á hjartadeild LSH, segir að innlögnum hafi fjölgað nokkuð í október án þess að hafa nákvæmt yfirlit þar um. Komur á bráðamóttöku tali sínu máli og álag á starfsfólk hafi aukist. Kreppan undanfarnar vikur sé eina haldbæra skýringin hérlendis, en hann nefnir sem dæmi að innlögnum á hjartadeildir hafi fjölgað í Bandaríkjunum í kjölfar jarðskjálfta og þekkt sé að spennandi leikir í fótbolta geti aukið tíðni hjartakvilla vegna spennu og álags.

 

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *