
Hjartaheill hefur um árabil verið með jólakortasölu fyrir jólin til tekjuöflunar. Jólakortin eru með myndum eftir listakonuna Gunnellu.
Jólakortin fást á skrifstofu Hjartaheilla að Síðumúla 6, Reykjavík og hjá aðildarfélögunum úti á landi. Sjá tengilinn hér til hliðar Formenn deilda
Einnig er hægt að hringja í síma 552 5744 og panta kort eða senda tölvupóst á netfangið hjartaheill@hjartaheill.is/old Pakkinn með 10 kortum kostar 1.000,- kr.
Jólakortasala Hjartaheilla hefur verið helsta fjáröflunarleið samtakanna til þessa.
Landsmenn hafa ávallt tekið þessari fjáröflun vel og vonum við að svo verði einnig fyrir þessi jól.