Aðgerðir vegna erfiðrar fjárhagsstöðu

Vegna erfiðrar rekstrarstöðu Landspítala á þessu ári hefur framkvæmdastjórn spítalans ákveðið aðgerðir til þess að minnka rekstrarkostnað það sem eftir er þessa árs.
Áfram verður lögð áhersla á að vernda öryggi sjúklinga og þjónustu við þá auk þess sem reynt verður að komast hjá uppsögnum starfsmanna.

 

Hulda Gunnlaugsdóttir forstjóri kynnti aðgerðirnar á fjórum fjölmennum starfsmannafundum á Landspítala föstudaginn 4. september 2009 og á fundi með blaða- og fréttamönnum í kjölfarið.

Helstu aðgerðir: 
Breyting á sólarhringsdeildum í dagdeildir eða 5-daga deildir. 
Lokun tveggja skurðstofa. 
Lækkun kostnaðar við innkaup. 
Lækkun bifreiðakostnaðar. 
Tímabundnar ráðningar verða ekki endurnýjaðar. 
Ekki verður ráðið í störf þeirra sem hætta vegna aldurs. 
Lækkun sí- og endurmenntunarkostnaðar. 
Ákveðnari reglur um breytilega yfirvinnu. 

 

Með þessum aðgerðum er áætlað að hagræða megi um 400 milljónir á þessu ári. Aðgerðirnar verða nánar útfærðar á næstu tveimur vikum.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *