Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) munu þann 1. janúar 2010 hefja rafræna útgáfu á afsláttarkortum og greiðsluskjölum til einstaklinga vegna heilbrigðisþjónustu.
Hætt verður útgáfu kortsins á plastformi en greiðsluskjöl verða fyrst um sinn send á pappírsformi til viðbótar við rafræna útgáfu. Nálgast má kortin og skjölin í Réttindagátt á www.sjukra.is .
Þetta er liður í frekari rafvæðingu stjórnsýslunnar og hagræðingu í heilbrigðiskerfinu.
• Frekari upplýsingar á www.sjukra.is
