Samið við Svía um hjartaaðgerðir á börnum

Skrifað undir samninginn í dag

Sjúkratryggingar Íslands og Háskólasjúkrahúsið í Lundi í Svíþjóð skrifuðu í dag undir samning um hjartaskurðaðgerðir á börnum.

Skrifað undir samninginn í dagAð sögn Sjúkratrygginga stendur sjúkrahúsið í Lundi einna fremst á Norðurlöndum í hjartaskurðlækningum og með samningnum náist umtalsverð lækkun á kostnaði frá fyrri samningi við Barnaspítalann í Boston auk þess sem að ferðatími styttist og ferðatíðni eykst.

Stofnunin segir, að samningurinn nái til um 20 barna á ári og geti falið í sér lækkun kostnaðar úr 400 milljónum króna í 300 milljónir. Ferðakostnaður sjúklinga og aðstandenda og uppihald aðstandenda muni einnig lækka um allt að 25% frá því sem verið hefur.

Þetta er þriðji stóri samningurinn sem Sjúkratryggingar gera í samstarfi við Landspítalann um brýna meðferð erlendis. Fyrir eru í gildi samningar við Sahlgrenska sjúkrahúsið í Gautaborg um líffæratöku og líffæraígræðslu og við Karolinska háskólasjúkrahúsið í Stokkhólmi um stofnfrumumeðferð.

Frétt af mbl.is 3. febrúar 2011

 

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *