Tímamót í starfi Hjartaheilla og Hjartaverndar

Guðmundur bjarnason og Vilmundur Guðnason
Guðmundur bjarnason og Vilmundur GuðnasonHjartaheill afhendir Hjartavernd 5.5 milljónir til kaupa á nýju ómtæki

Rannsóknarstöð Hjartaverndar og Hjartaheill lýstu formlega yfir auknu samstarfi sín á milli við hátíðlega athöfn nú í upphafi ársins. Þetta aukna samstarf verður til þess að þekking sú sem rannsóknir Hjartaverndar gefa af sér munu koma fyrr og með markvissari hætti til almennings og stjórnvalda. Hjartavernd eitt og sér hefur mjög svo takmarkað fé til þess að standa undir fræðsluátökum þar sem mest allt fé Hjartaverndar er eyrnamerkt ákveðnum vísindarannsóknum. Þessari samvinnu ber því að fagna enda er hér stigið stórt skref í  þágu forvarna hjarta- og æðasjúkdóma, forvarna sem skipta almenning og stjórnvöld máli.

Á þessum tímamótum færði Hjartaheill Hjartavernd höfðinglega gjöf, 5.5 miljónir króna til kaupa á nýju ómtæki. Ómtæki Hjartaverndar er úr sér gengið en með þeirri tækni má greina byrjunarstig æðakölkunar löngu áður en hjarta- og æðasjúkdómar gera vart við sig .  Guðmundur Bjarnason formaður Hjartaheilla og fv. heilbrigðisráðherra og afhenti fyrir hönd Hjartaheilla Vilmundi Guðnasyni prófessor og forstöðulækni Hjartaverndar þessa rausnarlegu gjöf sem sagði hana skipta sköpum í rannsóknum á byrjunarstigi æðakölkunar en rannsóknir þær sem Hjartavernd stendur fyrir í dag koma að öllum líkindum í framtíðinni til með að bæta lífsgæði og heilsu eldri íbúa landsins en eldra fólki á Íslandi mun fjölga verulega næstu áratugina. 

Stjórn Rannsóknarstöðvar Hjartaverndar og Hjartaheilla vilja nota þetta tækifæri til að þakka landsmönnum öllum hjartanlega fyrir ómetanlegan stuðning í forvörnum gegn hjarta- og æðasjúkdómum.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *