

Reykjalundarkórinn var stofnaður árið 1986 og er þetta því 28. starfsár kórsins. Lárus Sveinsson var fyrsti stjórnandi kórsins og dætur hans Ingibjörg og Hjördís Elín píanóleikarar. Síðastliðin 13 ár hefur Íris Erlingsdóttir stjórnað kórnum og Anna Rún Atladóttir séð um píanóleik. Í upphafi voru eingöngu starfsmenn Reykjalundar meðlimir í kórnum, en síðar bættust við makar, vinir, börn kórfélaga og einnig hafa margir nemendur Írisar úr Söngskólanum í Reykjavík sungið með okkur.
Haustið 2013 var sú staða komin upp að ekki var nægjanlegur fjöldi til þess að halda starfsemi kórsins áfram. Ákveðið var að leggja kórinn niður með glæsibrag og blása til stórra styrktartónleika fyrir Reykjalund sem hefur í gegnum árin sýnt kórnum mikinn velvilja og stuðning.
Haft var samband við eldri kórfélaga og tóku þeir vel í að ljúka þessu með okkur og erum við nú um 50 félagar sem syngjum á þessum tónleikum. Á tónleikunum koma einnig fram margir góðir gestir; Álafosskórinn, Karlakórinn Stefnir, Skólahljómsveit Mosfellsbæjar og síðast en ekki síst Páll Rósinkranz söngvari. Gaman er að segja frá því að Birgir D. Sveinsson kynnir en hann er bróðir Lárusar Sveinssonar, fyrsta stjórnanda kórsins.
Eins og allir vita eru litlar fjárveitingar til heilbrigðisstofnana í dag og alls staðar vantar tæki og tól. Allur ágóði af þessum tónleikum rennur því óskiptur til Reykjalundar til tækjakaupa.
Kórinn hefur verðið virkur öll árin sem hann hefur starfað, haldið jóla- og vortónleika og tekið þátt í ýmsum atburðum ásamt öðrum kórum, sérstaklega í Mosfellsbæ.
Kórinn hefur oft lagt land undir fót og haldið tónleika víða út um land og farið í tónleikaferðir til Svíþjóðar, Austurríkis, Ungverjalands, Tékklands, Þýskalands og Danmerkur.
Mætum öll létt í lund og látum sönginn efla Reykjalund!