
Í dag verður nýtt hjartaþræðingartæki vígt formlega á hjartadeild Landspítalans. Nýja tækið bætist þar í hóp tveggja annarra hjartaþræðingartækja og leysir 16 ára gamlan forvera sinn af hólmi. Tækið kostaði 150 milljónir, það var að mestu keypt fyrir söfnunar- og gjafafé og segir Davíð O. Arnar, framkvæmdastjóri lyflækningasviðs sjúkrahússins, að erfitt hefði verið að kaupa það ef sá stuðningur hefði ekki komið til.

Hin tækin eru fimm og tólf ára
Fyrra tækið var orðið 16 ára gamalt og var mjög gott á sínum tíma. Því hefur verið haldið mjög vel við en þegar tæki verða svona gömul verða myndgæði lakari, bilanatíðni eykst og viðhaldsdögum fjölgar, þannig að það var farið að trufla starfsemina nokkuð, segir Davíð.Annað af hinum tveimur hjartaþræðingartækjum sem fyrir voru í notkun er, að sögn Davíðs, fimm ára gamalt og hitt orðið tólf ára. Við þurfum að fara að huga að endurnýjun á allra næstu árum, það er nokkuð ljóst, segir hann.
Í hjartaþræðingarteymi Landspítalans eru um 22 sérhæfðir starfsmenn; læknar hjúkrunarfræðingar og lífeindafræðingar. Davíð segir að vinnubrögðin við aðgerðirnar sjálfar breytist lítið þó að nýr tækjabúnaður komi til sögunnar, en að sjálfsögðu þurfi að læra á ný tæki.
Vakt allan ársins hring

Hvað er það nákvæmlega sem gert er í hjartaþræðingartæki? Algengasta aðgerðin er myndataka á kransæðum, sem er gjarnan gerð þegar grunur er um kransæðasjúkdóm eða þrengsli í kransæðum. Þá er stungið á slagæð, núorðið er það gjarnan á úlnlið og í gegnum þá stungu er þræddur leggur til hjartans. Hann er svo settur inn í kransæð, sprautað inn skuggaefni og teknar myndir af kransæðunum. Þá sjáum við vel hvort það séu svæði í kransæðunum þar sem eru þrengsli, eða hvort þær líta vel út. Ef þar eru þrengsli, sem liggja vel við höggi, er gjarnan í sömu aðgerð farið með belg inn í kransæðina og þrengslin víkkuð út. Síðan er skilið eftir á þrengslasvæðinu svokallað stoðnet sem er blásið út, og eru þrengslin þar með löguð. Stundum eru þrengslin hinsvegar svo flókin og útbreidd að besti kosturinn er að gera opna hjartaskurðaðgerð til að tengja framhjá þrengstu æðunum.
Mikið þakklæti
Nýja tækið kostaði um 150 milljónir. Gjafa- og söfnunarfé nam um 95 milljónum og afgangurinn kom frá tækjakaupasjóði Landspítalans. Það hefur verið í notkun undanfarnar tvær vikur, m.a. til að þjálfa lækna og hjúkrunarfólk og klukkan 15 í dag verður það síðan formlega vígt. Við vildum hafa athöfn til að vígja það og þakka þannig þeim sem hafa stutt okkur í þessu; Gjafa- og styrktarsjóði Jónínu S. Gísladóttur, Hjartaheill, Neistanum og fleirum. Við höfum fengið rausnarlegan stuðning, við erum auðvitað mjög þakklát og því viðeigandi að þakka fyrir okkur. Án þessa stuðnings hefði þetta tæplega orðið að veruleika, segir Davíð.
Morgunblaðið föstudaginn 21. mars 2014