Eitt af markmiðum Lionshreyfingarinnar er að starfa af áhuga að aukinni velferð á sviði félagsmála, menningarmála og almenns siðgæðis. Þá segir í siðareglum að Lionsfélagar skuli hjálpa meðbræðrum sínum í vanda, þeir sem um sárt eiga að binda þurfi hluttekningu og þeir sem séu bágstaddir og minnimáttar þarfnist stuðnings. Í þessum anda hefur Lionsklúbburinn Víðarr starfað í meira en 30 ár. Klúbburinn hefur í gegn um tíðina aflað fjár með ýmsum hætti til að sinna líknarmálum. Undanfarin ár hefur svokallað „Víðarrs-blót“, sem haldið er árlega í upphafi Þorra, verið aðal fjáröflunin auk þess sem „skötukvöld“ í desember hefur notið vaxandi vinsælda og gefið af sér nokkrar tekjur. Því fé sem þannig aflast hafa klúbbfélagar nú samþykkt að verja í anda hreyfingarinnar til ýmissa líknarmála, ekki síst smærri verkefna þar sem félagar vænta þess að stuðningur klúbbsins komi að verulegu gagni. Þeir sem í ár hljóta stuðning klúbbsins eru:
1. Skaftholt í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, heimili fyrir fatlaða einstaklinga, styrkur til að ljúka við byggingu gróðurhúss, – kr. 500.000.-
2. Íþróttasamband fatlaðra, stuðningur við kaup á verðlaunapeningum fyrir Íslandsmót ÍF 2014, – kr. 300.000.-
3. Kvennaathvarfið, kaup á fjórum spjaldtölvum, leikjatölvu og sjónvarpi, – kr. 300.000.-
4. Hjartaheill, stuðningur við söfnun samtakanna fyrir nýju hjartaþræðingartæki, – kr. 300.000.- en áður hafði klúbburinn samþykkt að veita kr. 700.000.- og er því samtals um styrk að upphæð 1 millj. kr. til þessa verkefnis.
5. Spörvar, líknarfélag og rekstrarfélag áfangaheimilisins „Draumasetrið“ sem er heimili fyrir ungt fólk sem er að berjast við að ná tökum á lífi sínu eftir áfengis- og fíkniefna-meðferð, – kr. 250.000.-
6. Einhverfusamtökin, kostnaður við endurprentun fræðslubæklings sem klúbburinn hafði áður styrkt útgáfu á, – kr. 234.000.-
7. LSH – fíkniefnageðsvið, stuðningur við endurnýjun á tölvukosti sviðsins, – kr. 200.000.-
8. Lífsýn, fræðsla og forvarnir, stuðningur við börn og unglinga sem standa illa félagslega og hafa orðið fyrir einelti, tvær spjaldtölvur og fjármunir, samt. – kr. 100.000.-
9. Lionsklúbburinn Eik, stuðningur við útgáfu bókar til grunnskólabarna um brunavarnir heimila, kr. 20.000.-
Samtals nema þessar styrkveitingar sem hér um ræðir – kr. 2.204.000.- en á undanförum 15 árum hefur klúbburinn veitt yfir 30 milljónir króna í styrki til líknar- og góðgerðarmála.
Með þessum styrkveitingum vilja félagar í Lionsklúbbnum Víðarri sýna stuðning sinn við margvísleg verkefni sem vonandi koma þeim sem njóta að góðu gagni og auðvelda þeim að sinna betur sínum mikilvægu verkefnum í þágu skjólstæðinga sinna.
Reykjavík, 19. mars 2014
Lionsklúbburinn Víðarr
![]() |
![]() |
![]() |
|
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |








