Heilsan býr í hjartanu.Hjartadagshlaupið, sem haldið er í tilefni alþjóðlega hjartadagsins, verður haldið í áttunda sinn sunnudaginn 28. september. Boðið er upp á 5 og 10 kílómetra vegalengdir í hlaupinu en ókeypis er að taka þátt í hlaupinu eins og ætíð. Hlaupið hefst klukkan 10 og er ræst frá Kópavogsvelli. Strax í kjölfar hlaupsins fer fram hjartaganga um Kópavogsdal.
Alþjóðlegur hjartadagur er haldinn 29. september ár hvert en það er Alþjóðahjartasambandið (World Heart Federation) sem hvetur aðildarfélög sín um allan heim til að halda upp á Hjartadaginn. Á Íslandi sameinast Hjartavernd, Hjartaheill, Neistinn og Heilaheill um að halda daginn hátíðlegan.
Félögin hafa haldið upp á daginn með hjartadagshlaupinu um árabil í samvinnu við Kópavogsbæ sem hefur boðið þátttakendum í sund að hlaupi loknu. Þá er það Breiðablik sem sér um framkvæmd hlaupsins en hlaupaleiðin liggur um Kársnesið.
Þema hjartadagsins í ár eru samfélagið og umhverfi einstaklingsins. Heilbrigður lífsstíll er mikilvægasta forvörn gegn hjarta- og æðasjúkdómum. Einstaklingurinn ræður sjálfur mestu um sinn eigin lífsstíl. Mikilvægt er þó að gera einstaklingnum kleift að haga sínum lífsstíl á sem heilsusamlegastan máta. Umhverfi okkar þar sem við búum, vinnum og iðkum frístundir, getur haft mikil áhrif á getu okkar til að taka réttar ákvarðanir með heilsu okkar í huga. Á síðustu áratugum hefur margt breyst til batnaðar í samfélagi okkar og umhverfi. Okkur hefur verið gert auðveldara að lifa heilsusamlegu lífi, sé áhugi fyrir hendi. Hjólastígar, göngustígar, almenn útivistarsvæði, takmarkanir á reykingum og ýmislegt fleira hafa skilað sér til þjóðarinnar í bættri heilsu. Sérhver hreyfing er mikilvæg fyrir heilsuna. Ekki þarf alltaf mikið til. „Góður daglegur göngutúr á þeim hraða sem hverjum hentar skiftir máli fyrir heilsuna“ segir Vilmundur Guðnason forstöðulæknir Hjartaverndar. „Lærum að nota það sem í kringum okkur er.“
Kópavogsbær hvetur bæði íbúa bæjarins og nágrannasveitarfélaga til þess að nýta sér fjölmörg útivistarsvæði í bænum, hjóla- og göngustíga. „Útivistarmöguleikar í Kópavogi eru miklir. Hjartahlaupið og hjartagangan Kópavogi er gott tækifæri til að minna á þá.“ Segir Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogsbæjar.
Félögin sem að hlaupinu standa og Kópavogsbær hvetja sem flesta til þess að taka þátt í hlaupinu og Hjartagöngunni.
Skráning í hjartadagshlaupið fer fram á hlaup.is og við stúkuna fyrir hlaup frá klukkan 9 en hlaupið hefst klukkan 10. Vegleg verðlaun verða veitt fyrir efstu sæti.
Dagskrá sunnudaginn 28. september
Hjartadagshlaupið – klukkan 10:00 á Kópavogsvelli. Í boði eru tvær vegalengdir, 5 og 10 km með tímatöku. Vegleg verðlaun eru í boði fyrir efstu sæti, auk útdráttarverðlauna. Skráning er á www.hlaup.is eða á staðnum, við stúkuna á Kópavogsvelli frá klukkan 09:00.
Hjartagangan – sunnudaginn 28. september strax í kjölfar hlaupsins og verður gengið um Kópavogsdal undir leiðsögn garðyrkjustjóra Kópavogsbæjar. Gangan tekur um það bil klukkustund og er ekkert þátttökugjald.
Hjartasjúkdómar eru fyrirbyggjanlegir og með því að tileinka sér heilbrigðan lífsstíl má seinka sjúkdómnum og jafnvel koma í veg fyrir ótímabær dauðsföll
Hreyfðu þig! Hreyfing þarf ekki að vera ekki bundin við íþróttir eða líkamsrækt og getur verið margs konar, eins og við heimilisstörf, garðvinnu eða einfaldlega að fara út og leika við börnin. Settu þér raunhæf markmið, ekki byrja á því að klífa fjall eða hlaupa maraþon, þú byggir upp þrek og þol smám saman.
