

GoRed átakið er alheimsátak, á vegum World Heart Federation. Um er að ræða alþjóðlegt langtímaverkefni sem hófst í Bandaríkjunum og víða í Evrópu árið 2004 og hefur verið haldið á Íslandi frá árinu 2009.
Verndari átaksins á Íslandi er Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrum heilbrigðisráðherra. Formaður stjórnar GoRed er Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir sérfræðingur í hjartasjúkdómum.
Jafnmargar konur og karlar látast árlega af völdum hjarta- og æðasjúkdóma.
Konur gera sér ekki grein fyrir eigin áhættu.
Einkenni sjúkdómsins eru oftar óljósari hjá konum en körlum þannig að greiningarferli og áhættumat vegna hjarta- og æðasjúkdóma tefst oft.
Samkvæmt rannsóknum Hjartaverndar eykst tíðni áhættuþátta hjá konum eftir 50 ára aldur, svo sem hár blóðþrýstingur, hátt kólesteról, sykursýki og ofþyngd. Með hollu mataræði og reglubundinni hreyfingu má minnka líkurnar á flestum áhættuþáttum hjarta- og æðasjúkdóma.
GoRed á Íslandi er samstarfsverkefni Hjartaverndar, Heilaheilla og Hjartaheilla, auk fagdeildar hjartahjúkrunarfræðinga og fleiri fagaðila. GoRed stendur nú í sjöunda skiptið fyrir átaki til að fræða konur um áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma, einkennin og hvernig hægt er að minnka líkurnar á að fá þessa sjúkdóma. Við viljum benda á að „GoRed fyrir konur á Íslandi“ er á facebook og þú getur smellt hér til að gera „like“ við síðuna.
Hjartanlega velkomin á opið hús GoRed í húsnæði Hjartaheilla Síðumúla 6, sunnudaginn 22. febrúar frá klukkan 11-16
Formaður GoRed Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir flytur stutt ávarp.
Fyrir konur: Heilsufarsmælingar (blóðþrýstingur, kólesteról, blóðsykur, súrefnismettun).
Kynningar og stutt fræðsluerindi.
Klukkan 13:00: Fyrsta úthlutun úr rannsóknarsjóði GoRed á Íslandi.
Hjartavernd, Hjartaheill, Heilaheill og fagdeild hjartahjúkrunarfræðinga verða á staðnum
Allir velkomnir.
Til mikils að vinna, því markmið átaksins er að fræða konur og karla um einkenni hjarta- og æðasjúkdóma en sú þekking getur bjargað mannslífi.
Hvaða konur eru í forgangi?
Einkennalausar konur, 40 ára og eldri, ættu að fara í áhættumat til greiningar á áhættuþáttum á 5 ára fresti.
Einkennalausar konur yngri en 40 ára sem hafa ættarsögu um hjarta- og æðasjúkdóm hjá 1. gráðu ættingjum og/eða með sögu um ættgenga blóðfituröskun reglulega
Helstu áhættuþættir hjarta- og æðasjúkdóma hjá konum
Aldur
Reykingar. Kona sem reykir er í þre- til fjórfaldar áhættu sína á að fá hjartasjúkdóm.
Sykursýki er alvarlegur áhættuþáttur hjá konum.
Blóðfituröskun
Háþrýstingur
Ættarsaga um kransæðasjúkdóm hjá 1. gráðu ættingjum
Ofþyngd (BMI > 25-30) sérstaklega aukin kviðfita;
Offita (BMI>30)
Hreyfingarleysi
Ofangreindir áhættuþættir eru flestir einkennalausir og því þarf að mæla þá sérstaklega.
Einkenni hjartaáfalls og heilaslags – Konur eru öðruvísi
Konur eru líklegri til að upplifa eftirfarandi einkenni hjartaáfalls:
Óútskýrðan slappleika eða þreytu
Óeðlilegt kvíðakast eða verða taugaóstyrkar
Meltingartruflanir eða verk vegna uppþembu
Konur og karlar upplifa eftirfarandi einkenni hjartaáfalls:
Þyngsl eða verk fyrir brjósti eða fyrir neðan bringubein
Óþægindi eða verk milli herðablaða, í hálsi, kjálka eða maga
Verk sem kemur við áreynslu og hverfur við hvíld og getur verið fyrirboði kransæðastíflu
Stöðugan verk fyrir brjósti etv. með ógleði og kaldsvita sem getur verið einkenni um bráðakransæðastíflu og krefst tafarlausrar meðferðar
Konur og karlar upplifa eftirfarandi einkenni heilaslags:
Dofa eða máttleysi í andliti, handlegg eða fæti, aðallega í öðrum helmingi líkamans
Ringlun, erfiðleika með að tala eða að skilja
Erfiðleika með að sjá með öðru eða báðum augum
Erfiðleika með gang, svima, skort á jafnvægi eða samhæfingu
Slæman höfuðverk af óþekktri orsök
Yfirlið eða meðvitundarleysi
