
Golfmót Hjartaheilla fer fram á Bakkakotsvelli í Mosfellsdal sunnudaginn 9. ágúst kl. 9.00 og verður ræst af öllum teigum samtímis. Mæting er því ekki seinna en kl. 8.30.
Mótsgjald er eins og síðast „frjálst framlag“. Innifalið eru veitingar í lok móts og teiggjöf. Þátttaka skráist á netfangið kjartan@hjartaheill.is/old eða í síma 560 4818. Gefa þarf upp nafn og forgjöf ásamt netfangi eða símanúmeri. Skráning er hafin og lýkur kl. 12:00 föstudaginn 7. ágúst 2015 og gildir þar sú regla að fyrstur kemur – fyrstur fær.
E.s. Í Texas scramble eru fjórir leikmenn sem spila saman og slá allir sitt upphafshögg af teig, síðan er valinn besti boltinn og slá allir þaðan og svo koll af kolli þar til boltinn fer í holu. Ekki er heimilt að tilkynna inn lið, aðeins einstaklinga, en mótsstjóri leggur sig fram um að búa til sem jöfnust lið.
Mótsstjórn